Leita í fréttum mbl.is

Loddarar í VG. og Samfylkingu.

Undarlegur viðsnúningur Vinstri Græna og þingflokks Samfylkingarinnar þegar kemur að starfsmönnum Alcan.

 Þegar ríkisbankarnir voru seldir höfðu VG, og þingflokkur Samfylkingarinnar  miklar áhyggjur af starfsmönnum bankana og görguðu hátt.

Þegar síminn var seldur höfðu VG, og  þingflokkur Samfylkingarinnar miklar áhyggjur af starfsmönnum símans og görguðu hátt.

Þegar rætt var um breytingar  á rekstrafyrirkomulagi Ríkisútvarpsins  höfðu VG, og þingflokkur Samfylkingarinnar  miklar áhyggjur og starfsmönnum Ríkisútvarpsins  og görguðu hátt enda allt opinber fyrirtæki.

 

VG, og þingflokkur Samfylkingarinnar segjast hara áhyggjur að velfer launafólks.

 

 Þegar kemur að kosningu um Alcan hafa VG og þingflokkur Samfylkingarinnar  miklar áhyggjur og garga hátt þeir eru hræddir um að Hafnfirðingar segi já og Starfsmenn Alcan haldi vinnunni til framtíðar.

Svona eru viðhorf þeirra til Starfsmanna Alcan.

Hefur þá VG og þingflokkur Samfylkingarinnar áhyggjur að velfer launafólks?

Starfsmenn Alcan hvaða flokk ætlið þið og vinir ykkar og fjölskylda að kjósa í vor?

Kv, Sigurjón Vigfússon

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Sigurjón.

Þó ég sé ekki starfsmaður Alcan þá leyfi ég mér að skrá línu í tengslum við þessa umfjöllun þína. Rétt er að geta þess jafnframt að ég er ekki stuðningsmaður Vinstri Grænna né heldur Samfylkingarinnar.

Ég tel að hér sé ekki saman að líka, sölu bankanna eða sölu á Ruv og stækkun í Straumsvík. Sala á bönkunum var hið besta mál og hefur orðið til þess að íslenskt efnahagslíf hefur tekið miklum breytingum, með fjölgun starfa innan fjármálageirans en einnig í öðru og stærra samhengi. (útrásin). Varðandi breytingu á Rúv í ohf, þá er ekki að sjá að það breyti mjög miklu að svo stöddu að minnsta kosti.

En ég trúi því ef á reynir að allir flokkar, líka VG og Samfylkingin og fólk í þeirra röðum standi með starfsfólki í Straumsvík og verji störf þeirra og framtíð. Ég tel að ekki sé raunveruleg hætta á ferðum nú í aðdraganda kosninga um nýtt deiliskipulag, þrátt fyrir hótun um lokun. Hræðsluáróðurinn er því aðeins ein birtingarmynd auðvaldsins í þessu tilfelli í von um árangur. 

Sjálfur tel ég að Alcan velji að reka álver sitt áfram í Straumsvík og það með hagnaði og velji jafnframt að endurbyggja síðar þó nýtt deiliskipulag verði ekki samþykkt. En komi til þess að eigendur Alcan velji að hætta sjálfir rekstri einhvern tímann í framtíðinni, þá eru miklu meiri líkur en minni að aðrir vilji taka við en að lokað verði í Straumsvík. Hagstæðir raforkusamningar, vaxandi eftirspurn eftir áli og reynslumikið starfsfólk geta líka verið verðmæti í annara höndum en Alcan.   

Með bestu kveðju

Þorsteinn Gunnlaugsson, rekstrarverkfræðingur M.Sc.

Þorsteinn Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 28.3.2007 kl. 17:40

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll, Þorstreinn ekki ætla ég að gera þér upp pólpólitískar skoðanir hitt er svo annað mál að stjórnmálaflokkarnir allir nema x-B  hafa ekki staðið rétt að þessu  mál okkar Hafnfirðinga allir ætla þeir að ná sér í atkvæði bæði frá þér sem og mér og hvernig hafa þeir farið að því þeir hafa í flestum tilfellum ekki komið skírt fram þó svo að VG hafi tekið afstöðu hér en ekki fullmótað afstöðu sína til Húsarvíkur, umhverfismálin eru viðkvæm og sú umræða um hana er ekki í réttum farvegi því allir vilja þeir Lilju kveða í því mál sem getur leitt til þess að tjón getur orðið að móta þá stefnu í umhverfismálum  sem flestir landsmenn gætu sætt sig við mér finnst ekki rétt að nota okkur Hafnfirðinga í umhverfismálum með þeim hætti sem gert hefur verið umfram aðra landsmenn.

 En flokkarnir tóku skíra afstöðu í því máli er ofan greinir það er það sem ég er að höfða til.

 

Með  virðingu,  Sigurjón Vigfússon trúnaðarmaður Steypuskála og varaaðaltrúnaðarmaður starfsmanna Alcans.

 

Rauða Ljónið, 28.3.2007 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband