Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

Mikið reyðarslag þegar systurflokkur Vinstri Grænna þurfir að horfa á Berlínarmúrinn falla.

Mikill mannfjöldi hafði safnast saman þrátt fyrir rigningarúða í Berlín.

„Þetta er ekki einungis hátíðisdagur fyrir Þjóðverja,“ sagði Angela Merkel. „Þetta er hátíðisdagur allrar Evrópu.“

Búast nú við að í dag sé sorgar dagur í herbúðum Vinstri Græna og  gráta fall systur flokk sinnis í fyrrum Austur Þýskalandi.

Barack Obama forseti Bandaríkjanna hélt óvænt sjónvarpsávarp sem sýnt var við hátíðarhöldin. Hann sagði að kjarkur íbúa Austur-Þýskalands sem börðust við kúgun stjórnvalda hafi veitt sér innblástur. 

Dmitri Medvedev forseti Rússlands sagði að endalok Kalda stríðsins réttlættu ekki heimsyfirráð neinnar einnar þjóðar, og þótti hann sneiða þar að Bandaríkjunum.

Hljómsveit Ríkisóperunnar í Berlín lék kafla úr verkum Bethovens og Wagners. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar þúsund risastórir dóminókubbar úr frauðplasti, sem raðað hafði verið á 1,2 km kafla þar sem múrinn stóð og flóttamenn voru skotnir, féllu einn af öðrum.

Ríkisstjórnin ætlar að skattpína alþýðuna 47% skattur á launafólk.

Fjármálaráðherra og ríkistjórnin eru nú að fara yfir breytingar á skattkerfinu og hyggjast leggja á okurskatta á launþega eða 47% á tekjur yfir 500.000 krónur en hann er rúmlega 37% nú.

Breytingarnar eiga að skila ríkissjóði tugi milljarða í auknar tekjur á næsta ári. Og er rætt um að gera miklar breytingar á virðisaukaskattinum, m.a. að almennt hlutfall hans hækki úr 24,5% í 25%. Virðisaukaskattur á almenn matvæli er nú 7%, en vsk. á bækur, geisladiska og hótelgistingu tvöfaldist og verði 14%. Vsk. á kex, gosdrykki og safa hækki úr 7% í 25%,

Hugmyndirnar eru nú ræddar í stjórnkerfinu og við aðila vinnumarkaðarins en gera má ráð fyrir að endanleg útfærsla liggi fyrir síðar í þessari viku eða í þeirri næstu. Þessar breytingar eiga að skila ríkissjóði tugum milljarða í auknar tekjur á næsta ári.

Flest ráðuneyti og málaflokkar Fjármálaráðherra og ríkistjórnin hafa nánast úr sömu fjármunum að moða og á síðasta ári.

Það má ekki spara hjá ríkinu þegar allt kemur til alls.

 

 

 

.Steingrímur J. Sigfússon


Steingrímur J. er að gefast upp á spurningum fjölmiðla

Steingrímur J. , er ekki í sérlega ánægður þessa dagana. Hann er orðinn þreyttur á spurningum fjölmiðla um óeiningu í þingflokki VG.

Steingrímur verður að fara að gera sé ljóst og grein fyrir því að þingflokkurinn saman stendur aðeins að þrem heillbyrgðum þingmönnum hinir ellefu vita ekkert um þjóðmál né atvinnumál.

Steingrímur J. er pirraður. Allt frá því er Svavar Gestsson og Indriði skrifuðu undir Icesave-samninga í umboði Steingríms J. Og flýttu sér sem þeir gátu þeir máttu víst ekki  vera að þessu né vanda til verka nú hefur óeining magnast í þingflokki engin Vinstri grænn veit hversvegna.

Í sumar lá við uppreisn í flokknum þar sem margir þingmenn gátu alls ekki fellt sig við samningana.

Steingrímur verður að fara að gera sé ljóst og grein fyrir því að þingflokkurinn saman stendur aðeins að þrem heillbyrgðum þingmönnum hinir ellefu vita ekkert um þjóðmál atvinnumál og berjast gegn atvinnuuppbygginga á allann hátt eins og málin hafa sannað skemmst er frá því að segja að Suðurnesjamenn fóru í fyrstu mótmæla göngu síðan lýðveldið var stofna og báðu stjórvöld um atvinnu.

Hinir ellefu þingmenn VG, Stofublómin og kaffihúsafólkið 101 RVK Dúkkulýsunar verður Steingrímur bara að senda í endurvinnsluna þetta eru óhæfir þingmenn hvernær rennu upp það ljós að best sé fyrir Steingrín að endurnýja þetta einnota lið það er alltaf hægt að fá ný Stofublóm og Dúkkulýsur eru á góðu verði.22b_puppets_narrowweb_300x386_0.jpg


Ógnvekjandi ástand á verktakamarkaði

Ekkert útboð er auglýst og engin útboð eru fyrirhuguð hjá Vegagerðinni á næstunni en á sama tíma í fyrr voru verkin 43, bæði stór og smá.

Ríkið hafi skorið heilan málaflokk niður við trog.

Vegagerðin gefur reglulega út Framkvæmdafréttir. Þar eru auglýst fyrirhuguð útboð og jafnframt greint frá niðurstöðum fyrri útboða. Samanburður frá sama tíma fyrir ári gefur ógnvekjandi mynd af ástandi á verktakamarkaði.

 

Ekkert útboð er auglýst og engin útboð eru fyrirhuguð á næstunni en á sama tíma í fyrr voru verkin 43, bæði stór og smá. Núna er ekkert verk á samningsborðinu en það voru jafnan.

Vegagerð hefur verið skorin niður um 7,5 milljarða á þessu ári og því er ekkert framundan og ekki verður ráðist í nein ný verk. Engu fjármagni verður varið til nýrra verkefna á næsta ári fyrir utan þau sem þegar eru komin af stað.
Samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar eru 2.200 manns úr mannvirkjagreinum atvinnulausir og illu heilli þeim hlýtur þeim að fjölga hratt, þar sem ekkert er framundan og ríkið sker heilan málaflokk niður við trog.
Ekkert útboð er auglýst og engin útboð eru fyrirhuguð hjá Vegagerðinni á næstunni en á sama tíma í fyrr voru verkin 43, bæði stór og smá.
Ríkið hafi skorið heilan málaflokk niður við trog
      

vinnuvelar_2.jpg

Vinnuvélar fluttar úr landi.

 

 

 
 

Áralöng vinna í hættu í Stykkishólmi.

Opinber störf í Stykkishólmi eru hátt hlutfall af heildarstörfum þar í bæ. Með sameiningu og fyrirtækja og stofnana, þar sem fjárhagslegur sparnaður er lagður til grundvallar, er hætta á að aukin miðstýring og fjarlægð frá vinnustöðvum verði til þess að störf fari til Reykjavíkur að nýju. Sameiningar af þessum tagi bitna sömuleiðis fyrst og fremst á fámennum stofnunum.


Áralöng vinna við eflingu atvinnulífsins á landsbyggðinni með fjölgun opinberra starfa er í hættu með fyrirhuguðum aðgerðum ríkisvaldsins .

Bæjarstjórn Stykkishólms skorar á ríkisstjórnina að hafa sanngirni að leiðarljósi.

Opinberra störf á landsbyggðinni eru í alla staði hagkvæmari en sambærilegra störf á höfuðborgarsvæðinu, sé til að mynda horft til húsnæðiskostnaðar. Því sé nær lagi að renna styrkari stoðum undir opinber störf á landsbyggðinni m.a. með frekari flutningi verkefna til stofnana og fyrirtækja ríkisins sem nú þegar hafi verið valinn staður utan höfuðborgarsvæðisins.


153170A


Engin þjóðarsátt virðist vera um forsetann.

Tæplega þriðjungur aðspurðra í könnun vill að forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, segi af sér embætti.

Í könnun Rannsóknarmiðstöðvar Háskólans á Bifröst sem unnin var var fólk meðal annars spurt hversu sammála eða ósammála það væri því hvort að Ólafur Ragnar ætti að segja af sér embætti.

Voru tæplega 62 prósent því ósammála á móti 29 prósentum sem voru sammála því að forsetinn segði af sér. Þetta þýðir að tæplega þriðjungur vill að Ólafur Ragnar Grímsson yfirgefi Bessastaði. 10 prósent aðspurðra sögðust hvorki vera sammála því né ósammála að forsetinn ætti að segja af sér.

Meirihluti þeirra sem sögðust vera sammála því að forsetinn segði af sér býr á höfuðborgarsvæðinu, en rúmlega þriðjungur höfuðborgarbúa vill forsetann frá. Greint eftir aldri voru það frekar karlmenn sem sögðust sammála því að Ólafur Ragnar yfirgæfi Bessastaði, eða 30 prósent en 27 prósent kvenna. Af þeim sem sögðust sammála því að forsetinn segði af sér voru flestir á aldrinum 45-54 ára, en 38 prósent aðspurðra í þessum aldurshóp sögðust sammála því.

Ólafur Ragnar Grímsson virðist njóta trausts meðal eldri borgara því aðeins 12 prósent svarenda á aldrinum 65-75 ára sögðust vilja að hann segði af sér.

Tekið var 1350 manna úrtak úr þjóðskrá meðal einstaklinga á aldrinum 18-75 ára af landinu öllu. Könnunin var gerð dagana 26. október til 3. nóvember

.b3146eceee2454


Veruleg kaupmáttarrýrnun næsta ár verður afar erfitt.

Þetta er mjög mikil rýrnun í kaupmætti og segir okkur eitt; næsta ár verður afar erfitt fyrir mjög mörg heimili, Í Peningamálum Seðlabankans kemur fram að spáð er 15 prósenta kaupmáttarrýrnun á næsta ári. Fyrri spár bankans höfðu gert ráð fyrir rúmlega sjö prósenta rýrnun.

Ástæða þess að forsendur spárinnar breytist jafn mikið og raun ber vitni er sú að í fyrri spám var ekki gert ráð fyrir að beinir skattar myndu hækka jafn mikið og Seðlabankinn gerir ráð fyrir í nýju spánni. Rýrnunin á næsta ári bætist við rúmlega nítján prósenta kaupmáttarrýrnun sem gert er ráð fyrir að verði í lok þessa árs, 2009.

Þetta verður mjög erfitt ár og virkar sem högg á mann að heyra svona tölu. Það eina sem við skulum vona er að hún rætist ekki að fullu leyti,“ segir Jóhannes.


Suðurnesjamenn er glæpalýður.

Þannig má skilja viðhorf VG við  Kúagerðisgöngunni Suðurnesjamanna já þeir heimta víst vinnu þessir Suðurnesjamenn þvílíkur skríll selja sig fyrir atvinnu rekendur og verkalýðshreyfinguna heimta og vilja vinnu.

 Þverpólitísk Keflavíkurganga sem farin var í dag frá Vogaafleggjara klukkan hálfellefu, gengnir voru10 kílómetrar að Kúagerði þar sem samstöðufundur var haldinn klukkan tvö.

Undirbúningshópur Keflavíkurgöngunnar krefst þess að stjórnvöld gangi í takt og mæti hópnum á miðri leið. Hópurinn vill koma af stað vitundarvakningu um stöðu atvinnumála á Suðurnesja. Þar eru í dag 1600 manns án atvinnu.

Á fjórða hundrað manns tóku þátti í göngunni.

 Úr grein, Grímur Atlason:. Vinstri Grænn.

 Það að ganga frá Vogum að Kúagerði og kalla það Keflavíkurgöngu er nokkuð skrítið en látum það liggja á milli hluta. Hins vegar þykir mér merkilegt að forsvarsmenn Reykjanesbæjar o.fl. skuli ganga kröfugöngu þar sem lögð er áherslu á úrbætur í atvinnumálu á Suðurnesjum.

Kúagerðisgangan er þannig aðeins markaðstilraun þar sem markmiðið er að beina kastljósinu frá hinum raunverulegum vanda Suðurnesjamanna. Ég þakka herra mínum fyrir umhverfisráðherra sem hlustar ekki á patent bull ( Suðurnesjamanna ) . Umhverfisráðuneytið er ekki skúffa í Fasteignafélaginu Reykjanesbær!

Bæn Vinstri Græna.

Verkamaður heimski hundur,

Suðurnesja frekju mundur.

 

Og heimtar vinnu þig að fæða,

kaupa föt og börn þín klæða.

 

Þú heimtar rétt og réttlæti,

að vera virtur Íslendingur.

En allt þetta í veg eg vill koma

sem Vinstri Grænn vill ég því lofa.

185px Stalin1


mbl.is Vilja samstöðu með Suðurnesjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir Þórunni hafa brotið.

Þórunn                                                             Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, stendur við orð sín í orðaskiptum við Þórunni Sveinbjarnardóttur, fyrrverandi umhverfisráðherra, á Alþingi í vikunni. Þórunn ásakaði þar Höskuld um lygar, þegar hann sagði Þórunni hafa brotið lög, en Höskuldur stendur við orð sín og segir eðlilegt að Þórunn biðji hann afsökun.

 

Segir Þórunni hafa brotið

Er það heldur ekki furða þar sem ráðuneytið fór 8 mánuði fram yfir hinn lögbundna tveggja mánaða frest sem getið er í 4. mgr. 14. gr. laga nr. 106/2000. Með öðrum orðum þá dróst um 10 mánaða skeið að kveða upp úrskurðinn og rannsóknir við tilraunaborholur töfðust á meðan,” segir Höskuldur í yfirlýsingu í dag.

Hann segir að með þessu liggi fyrir að Þórunn hafi kveðið upp úrskurð sem brotið hafi “á bága við lög og tafði tilraunaboranar á Þeistareykjum. Verkefni sem alla tíð hefur verið samofið verkefninu um að reisa stóriðju á Bakka við Húsavík, segir Höskuldur.”

Þá segir hann orð Þórunnar hafa verið persónulegar árásir í sinn garð og hún eigi að biðjast lög og að hún eigi að biðjast afsökunar.

Höskuldur ítrekar fyrri orð sín að umboðsmaður Alþingis hafi komist að þeirri niðurstöðu að Þórunn hafi brotið lög sem umhverfisráðherra. Vísar hann til álits umboðsmanns nr. 5376/2008, frá 29. desember 2008 þar á lútandi.

Höskuldur stendur við orð sín: Segir Þórunni hafa brotið lög og að hún eigi að biðjast afsökunar afsökunar.

hoskuldur-thorhallsson.jpg

 

 


Ríkisútvarpið sumra landsmanna.

RÚV auglýsir að fjölmiðlar séu háðir eigendum sínum. RÚV  segir að það sé engu háð nema 319.326 eigendum. Þetta er auðvitað rétt hjá RÚV að mati þeirra en við nánari skoðun horfir málið allt öðruvísi við.

Hinsvegar væri gaman að vita hvaða Lygar Mörður kom með þessa setningu.

RÚV er eina fyrirtækið hér á landi sem fer árlega í gjaldþrot en það gerir ekkert til almenningur borgar brúsann með nauðungargjöldum  í boði alþingis, RÚV er eina fyrirtækið sem þarf ekkert aðhald í rekstri fari það fram úr rekstri almenningur borgar sé sukkað of mikið almenningur borgar... Þegar að ný lög um Ríkisútvarpið tóku gildi árið 2007 hefur gagnsæi í starfsemi horfið og gufað hreinlega upp , stöður eru auglýstar og mál sveipuð hulu falið og dulið. Í reglum um fréttir er sérstaklega kveðið á um að Ríkisútvarpið skuli veita ,,hlutlæga fréttaþjónustu og vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni,, .

Þar er oft misbrestur á og þegar brotið eitthvað á eða rangtúlkað málið eða lagað að skoðun fréttamanna  og þeir sem telja á sér brotið hafa engan vettvang til þess að skjóta máli sínu til lag færingar. Um fjölmiðla gilda siðareglur. Fólk getur skotið máli sínu til siðanefndar blaðamanna. Telji einhver að fréttamenn RÚV brjóti fréttareglur þá einfaldlega horfa þeir ofan í hyldýpi þöggunar því fréttareglur RÚV eru ekki hinar sömu og siðareglur annarra fjölmiðla.

Það hefur enginn neitt um það að segja hvort fréttareglur RÚV séu virtar. Eigendur RÚV geta ekki fengið úrskurð um það hvort hvort RÚV fari að fréttareglum - sé vettvangur mismunandi skoðana. Ríkisútvarpið er sumsé fyrir ofan lög og reglur - ósnertanlegt ríki í ríkinu. Og í krafti þessa er að þróast fréttamennska sem þekkist ekki í rótgrónum vestrænum ríkjum - helst þarf að fara til Ítalíu Berlúskónís og Rússlands Pútíns til þess að finna hliðstæður þar sem fréttum er stýrt á lævíslegan hátt.   

 

Dæmin eru fjölmörg. Mogginn birti viðtal við brottrekinn seðlabankastjóra. RÚV sagði frá viðtalinu og birti í kjölfarið frétt til þess að koma höggi á bankastjórann sem væri tvísaga og ótrúverðugur.  Viðskiptaráðherra flutti dæmalausa ræðu á Alþingi um bankahrunið sem væri íslenskum aulum einum um að kenna. Landsmenn ættu að skammast sín og borga. Þingmaður sakaði ráðherra um að spila í röngu liði; taka evrópska hagsmuni fram yfir íslenska. Það þarf að fara aftur til árdaga kaldastríðsins til þess að finna sambærilega ásökun, stórpólitísk tíðindi. Sjónvarpið þögult sem gröfin. 

Formaður Framsóknarflokksins fór utan og bað um norska aðstoð. Förin varð ekki inntak frétta RÚV heldur að ráðgjafar formannsins hefðu unnið fyrir Björgólfa Formaður Sjálfstæðisflokksins sakaði Norðurlönd um að svíkja Ísland, taka þátt í evrópskri aðför að íslenskri þjóð með þátttöku Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þetta var söguleg ásökun á vettvangi Norðurlandaráðs, stórmerkilegur pólitískur viðburður. Viðbrögð Sjónvarps – þöggun. Tvívegis sama kvöld voru sómafréttir um forsætisráðherra. Í annarri skammaði hún Alþjóðagjaldeyrissjóðinn fyrir að fresta lánveitingum meðan hún sat til borðs með norrænum meðreiðarsveinum AGS og hafði ekki þrek til þess að beina orðum sínum til norrænna kollega sem taka þátt í aðförinni að þjóð hennar. Við brostum að slíkri fjölmiðlun í sovétblokkinni í gamla daga.

Svona vinnur Ríkisútvarp 319.326 Íslendinga árið 2009 og mun svo gera áfram. Páll hefur að vísu ekkert um málið að segja enda fréttastofan ríki í ríkinu sem rekin er að annarlegum sjónarmiðum sumra fréttamanna.

Um svona Ríkisútvarp með þessu formi sovétblokkarinnar verður aldrei sátt.  springbird

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband