Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Alcan greiðir hæstu opinberu gjöldin á Reykjanesi.

 

 

 Alcan greiðir hæstu opinberu gjöldin eða um 960 milljónir kr.  í opinber gjöld og er hæðsti  greiðandinn í Reykjanesumdæmi, Kópavogskaupstaður er í öðru sæti með 300 millj. Kr. Í þriðja sæti er Toyotaumboðið, Hafnarfjarðarkaupstaður er svo í fimmta sæti með 217 millj. Kr. í opinber gjöld.

(Sjá: RSK.)

Ef stækkað verður má gera ráð fyrir að Alcan greiði þrisvar sinnum hærri upphæð eða sé miðað við framleiðslu  eftir stækkun,   2,597.62  millj.kr.   eða  yfir tvo og hálfan milljarð.

Þess má geta að þreföld stækkum hefur svipað vægi inn í atvinnulíf Hafnarfjarðar og þegar Álverið tók til starfa á sínum tíma sé miðað við íbúafjölda. Menn skulu huga að því og um leið framtíð atvinnuuppbyggingar fyrir Hafnarfjörð.

 

Kv.Svig. 

 


Munu hafnfirðingar sjá ljósið og samþykkja stækkun Alcans?

Í heimspeki má lesast ?  Bæjarstjórn sem virðist duglaus, er oft affarasælust fyrir bæjarbúa.  Ströng bæjarstjórn sem skiptir sér af öllu veldur bæjarbúum ófarnaði.  Eymd er alltaf á hælum góðærisins og hamingjan hvílir á bágindunum.

 

Eigum við að hverfa frá réttlætinu þótt fyrirtækið Alcan hafi farið alla þá lýðræðislegu leið til að fá að nútímavæðast?  Ef við hverfum frá réttlætinu?  Þá fer allt aflaga.   Vinstri-grænir og afturhaldssinnar hafa svo sannalega vaðið í villu og svima.

 

Þess vegna vaki ég dag og nótt yfir réttlætinu þannig að gott fyrirtæki fái að vaxa og dafna. Ég er fastur fyrir ef ég vil það, alltof hreinskilinn þannig að vinum mínum ofbýður stundum. Reyni að vera ekki ónærgætinn.  Reyni að túlka ljósið þó Vinstri- grænir og félagar þeirra í Sóli í Straumi vilji sjá eitthvað annað.

 

Affærasælast fyrir Hafnarfjörð og allt Ísland er að Alcan stækki og fari eftir öllum þeim leikreglum sem settar eru.  Allar tölur sýna að álver mengar alltaf minna og minna með hverju árinu sem líður.  Mesti mengunarvaldurinn á næstu árum mun líklegast verða ferðamanna iðnaðurinn að mínu viti þar sem hver einasta manneskja mengar eitthvað.

 

Þarf kannski 10% atvinnuleysi til að fólk sjái ljósið.

 

Stækkun Alcans, JÁ TAKK.

 

ÁÞ


Í Sátt við náttúru og samfélagið.

Husnes, Kvinnherad, Noregi nor2002_1 hussnes

Hussnes í Noregi. 

Víða í heiminum starfa fyrirtæki í öllum iðnaði í sátt og samlyndi við sítt nánasta umhverfi og þá helst þegar fyrirtæki vilja aðlaga sitt starf að umhverfi og staðháttum og kröfum íbúana.
 

En það hefur verið stefan Alcan Straumsvík og mun svo vera áfram þetta er ein liðurinn að þau Verklýðsfélög sem eru inn Alcan eru hlynnt stækkun.

Kv, Svig 

 


Sjónmengun og fleira

Margir tala um sjónmengun af álverinu í Straumsvík. Umhverfi álversins er með snyrtilegustu iðnaðarlóðum sem ég hef séð. Hins vegar ef skoðað er hinumegin við Reykjanesbrautina erum við komin í mjög svo sóðalegt umhverfi. Það virðist ekki vera nema eitt fyrirtæki þar, Íslandsprent, sem hefur fyrir því að líta þokkalega út, enda tekst þeim það mjög vel, allt mjög snyrtilegt og flott hjá þeim. Ef byggingar Isal eru sjónmengun, hvað eru þá blokkirnar í Vallarhverfinu annað en sjónmengun og þá aftur byggingarnar í iðnaðarhverfinu hinumegin við Reykjanesbrautina ? Hvað er IKEA annað en sjónmengun í þessu fallega hrauni ? Hve stór hluti íbúa á Völlunum sjá álverið út um gluggan hjá sér, ótrúlega lítið hlutfall held ég. Ég held að það sé nokkuð ljóst að ef Isal fær að stækka, þá verður það landsvæði sem það mun standa á, eins snyrtilegt og það getur orðið ef verður byggt á því á annað borð, og það er ekkert ef, því það verður byggt á því, hvað sem verður svo byggt.

Nálægð við byggð er þekkt um allan heim. Hjá til dæmis frændum okkar í Noregi eru álver inn í grænum dölum með íbúabyggð alveg upp að girðingu, allir eru sáttir, því fólk veit hve mikils virði þau eru fyrir samfélagið og að því stafar engin hætta af þeim.

Fram kemur á heimasíðu Isal:  „...viðmiðunarmörk sem gilda um flúor taka mið af því að gróður er mun viðkvæmari fyrir flúormengun en fólk.  Þannig eru heilsuverndarmörk fyrir fólk 30 sinnum hærri en þau viðmiðunarmörk fyrir gróður sem okkur er gert að uppfylla“ ( http://www.alcan.is/?PageID=215 ).

Það er einnig ljóst að þó Isal verði ekki stækkað verður samt virkjað í Þjórsá, því það er vöntun á rafmagni. Ég þekki mann sem þekkir mann sem á foreldra sem eiga land að Þjórsá. Hann hefur eftir þeim að af þeim sem eiga land að Þjórsá er einungis einn sem er á móti því að virkja, svo hvað erum við að rífa kjaft sem vitum ekki um hvað er verið að tala. Teljið þið ykkur vita um hvernig virkjanir er verið að tala ? Áður en þið játið því, bið ég ykkur að brjóta odd af oflætinu, kynna ykkur málið og athuga hvort þið hafið rétt fyrir ykkur. Eruð þið viss um að virkjun sé bara eitthvað slæmt ?

Læt þetta duga í bili á meðan þið athugið þetta.

JFD


Sól í Straumi sækir um annan styrk til Hafnarfjarðarbæjar án hjálpar Vinstri- grænna,

Í  gær þann 15 janúar lögðu forsvarsmenn Sólar í Straumi fram nýja umsókn um nýja styrktarveitingu til Hafnarfjarðarbæjar.  Að þessu sinni án hjálpar forsvarsmanna Vg.  Það hefur líklegast ekki þótt nógu heppilegt að kreista þessa peninga út úr bæjarsjóði með hjálp vinstri- grænna?

Á heimasíðu Sólar í Straumi er hægt að lesa um umsóknina.

. “Nú í morgun lagði Sól í Straumi fram umsókn um styrk til Hafnarfjarðarbæjar. Umsóknin miðast við kynningu á málstað Sólar í Straumi fyrir bæjarbúum í Hafnarfirði fram að kosningu um málið. Í kostnaðaráætlun hópsins er gert ráð fyrir framhaldi á borgarafundunum sem haldnir hafa verið í vetur, aðkomu sérfræðinga að þeim fundum, útgáfu á prentuðu efni og dreifingu á því, auglýsingum, gerð teikninga og mynda af framtíðarskipulagi Straumsvíkursvæðisins, dagsferð fyrir Hafnfirðinga að virkjunarsvæðunum á Reykjanes og Þjórsá og öðru kynningarstarfi. Áætlun Sólar í Straumi gerir ráð fyrir heildarútgjöldum að upphæð 6.915.000,- með vsk. og hljóðar umsóknin uppá þá upphæð. Umsókn Sólar í Straumi er lögð fram í trausti þess að Hafnarfjarðarbær vilji að öll sjónarmið í stækkunarmálinu komi fram. Með mikilli sjálfboðavinnu kjarnahópsins og elju þeirra íbúa bæjarins sem bætast vilja í hópinn telur Sól í Straumi að fyrir þessa upphæð takist hópnum að kynna sín sjónarmið fyrir bæjarbúum.”

Mín skoðun er sú að það er ekki hægt að bæjarstjórnin veiti peninga í slík verkefni sem skaða bæinn okkar.  Hvet forsvarsmanna Sólar í Straumi að leita til fyrirtækja.  Ef bæjarstjórnin samþykkir svona styrki þá er hún búin að veita fordæmi til handa hinum ýmsu mótmælahópum.

Hvar á að draga mörkin í vitleysunni.

ÁÞ


Og þú líka elsku Ómar Ragnarsson

Það étur hver upp eftir öðrum að Alcan hóti lokun, en enginn getur bent á  hvenær það var gert.Það hlýnar með hækkandi hita. Það kólnar með lækkandi hita. Er hægt að kalla þetta hótanir?Aðvitað ekki,  þetta eru staðreyndir.  Ef ekki verður stækkað í Straumsvík er það upphafið að endi fyrirtækisins. Er hægt að kalla það hótun?Auðvitað ekki,  þetta er staðreynd.

 TLS


Takk fyrir þessi hlýju orð til starfsmanna Alcans. Dorrit Moussaieff

Það er ekki hægt að segja annað en að manni hafi hlýnað um hjartarætur eftir að hafa fylgst með ágætu viðtali Evu Maríu  í Kastljósinu í gærkvöldi við forsetafrúnna Dorrit Moussaieff.  Þar talaði  forsetafrúin okkar með hlýjum orðum til starfsmanna fyrirtækisins.

 

Starfsmenn minnast vel heimsóknar Dorritar þar sem hún sem persóna kom okkur svo sannalega á óvart með sinni virðingu til okkar.  Ef starfsmenn hefðu ekki þekkt hana sem forsetafrú, þá hefðu starfsmenn haldið að ný kona væri að hefja störf hjá fyrirtækinu þar sem forsetafrúin leit á alla sem jafningja sína án yfirstéttahroka.

 

Ég vildi fá að segja þessa skoðun mína þar sem við álvers starfsmenn höfum svo sannalega fengið að finna fyrir óhróðri frá ýmsum á störf okkar á síðustu mánuðum.

 

Vona svo að forsetafrúin sjái sér fært að heimsækja okkur sem fyrst aftur í álverið og takk aftur fyrir þessi hlýju orð til starfsmanna.

 

ÁÞ


Vill Sól í Straumi leggja niður barna- og unglinga íþróttir í Hafnarfirði.??

 

Vill Sól í Straumi leggja niður barna- og unglinga íþróttir í Hafnarfirði.??

Eins og sést í grein þessari úr Fréttablaðinu sjá hér neðar. 

Svig. 

Enn um Alcan  samfélagsleg ábyrgð eða mútur?

 Umræðan Álverið í Straumsvík Í fréttaskýringu Inga Freys Vilhjálmssonar í Fréttablaðinu þann 3 janúar er fjallað um samskipti Alcan við hafnfirskt samfélag undir fyrir

Umræðan

Álverið í Straumsvík

Í fréttaskýringu Inga Freys Vilhjálmssonar í Fréttablaðinu þann 3 janúar er fjallað um samskipti Alcan við hafnfirskt samfélag undir fyrirsögninni samfélagsleg ábyrgð eða mútur, og spurningamerki hnýtt aftan við fyrirsögn. Í þessari grein langar mig að fjalla um þann part fréttaskýringarinnar sem lýtur að samskiptum Alcan og íþróttafélaga í bænum. Eins og fram kemur í fréttaskýringu Inga Freys er í gildi styrktarsamningur á milli Alcan og íþróttafélaganna í Hafnarfirði og var hann gerður árið 2002 og gildir til ársins 2007. Sterklega er gefið í skyn að samningurinn sé gerður af annarlegum hvötum eða þeim að hafa bein eða óbein áhrif á skoðanir bæjarbúa á fyrirtækinu og þá ekki síst kvenna, að mati Péturs Óskarssonar, forsvarsmanns Sólar í Straumi.

Í samningnum kemur að vísu ekkert annað fram en að fyrirtækið vilji sinna samfélagslegum verkefnum þannig að hér er einungis um að ræða skoðun Péturs en ekki einhvern sannleik. Mikil má framsýni Alcan manna vera ef þeir hafa byrjað að stunda kosningabaráttu sína árið 2002. Tilgangur Alcan er vafalaust að styrkja sína ímynd og orðspor meðal bæjarbúa og er þessi leið fyrirtækja alþekkt og má nefna dæmi um Actavis og FH, Shell og KR, Vodafone og Manchester United og svona mætti lengi telja.

Ingi Freyr vitnar einnig til Sigurðar P Sigmundssonar sem segir að "samningurinn sé kynntur sem styrktarsamningur en sé í rauninni íþyngjandi auglýsingasamningur". Ekki veit ég hvað Sigurður er að fara með þessari umsögn, hann hefði þá átt að afþakka styrkinn heldur en að þakka fyrir hann á þennan hátt. Þessi styrkur Alcan hefur ekki verið íþyngjandi okkur í barna- og unglingaráði knattspyrnudeildar FH heldur höfum við talið hann mjög sanngjarnan. Það að fyrirtækis sé getið í leikskrám á heimasíðu eða á búningum þar sem við á er alþekkt enda er það hvorki markmið fyrirtækja sem styrkja íþróttafélög eða íþróttafélaganna að því sé haldið leyndu, þvert á móti og þetta veit Sigurður. Ef hann vill ekki taka við fé frá Alcan af siðferðislegum ástæðum á hann einfaldlega að afþakka það fyrir hönd sinnar deildar en ekki nota það sem átyllu í pólitískri umræðu.

Þegar ég flutti í bæinn þá dáðist ég að því hvað þetta "skrímsli" út við ströndina var duglegt að styrkja íþróttafélögin í Hafnarfirði og þá sérstaklega barna- og unglingastarf. Hefur undirritaður starfað í íþróttahreyfingu síðastliðin 30 ár og hefur mér fundist styrkur Alcan inn í starfið gera okkur kleift að starfa á sómasamlegan hátt. Síðastliðin 3 ár hef ég verið formaður barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar FH. Þar hefur Alcan komið vel að starfinu með fjárstyrk sem hefur gert félaginu kleift að mennta þjálfara enn betur og gert gæfumuninn í öllu starfinu. Aldrei í því samstarfi hafa komið fram neinar óeðlilegar kröfur um auglýsingar, umfjöllun eða annað sem hefur verið félaginu íþyngjandi á nokkurn hátt. Þess skal einnig getið að það var FH sem leitaði til Alcan eins og svo margra annarra hafnfirskra fyrirtækja eftir fjárstuðningi en ekki öfugt.

Þakka ber það sem vel er gert, en ekki vanvirða, hvort sem það er fjárstuðningur, sjálfboðavinna eða annar stuðningur við barna- og unglingastarf, sama með hvaða hætti það er. Minn skilningur er ekki sá að börnin okkar séu að þiggja mútur frá Alcan. Minn skilningur er sá að fyrirtækið sé að sinna sinni samfélagslegu ábyrgð af virðingu við sitt samfélag.

Alcan framleiðir ál og stækkun verksmiðju þess er umdeild í Hafnarfirði. Þá umræðu skulum við taka á málefnalegum nótum byggða á rökum um kosti og galla stækkunar, ekki á rógburði eða með því að gera eðlilega hluti tortryggilega. Það er ekkert tortryggilegt við stuðning Alcan við barna- og unglingastarf í Hafnarfirði, það er þakkarvert. Í samanburði við annað stórfyrirtæki sem styrkir íþróttirnar, Actavis, ekki get ég ímyndað mér að lyfjainntaka hafi eitthvað aukist hjá Hafnfirðingum.

Gísli Björgvinsson, formaður unglingaráðs FH.


Draumur verkamannsins fyrir framandi kynslóðir sem vill að fyrirtæki í Hafnarfirði muni byggja fjölnota íþróttahús.

Ég á mér þann draum að byggt verði stórt fjölnota íþrótta/sýningarhöll í bænum okkar fljótlega á næstu árum eða sem fyrst.  Með stuðningi öflugra fyrirtækja bæjarins eins og Actavis og Alcans og fl.  Tek það fram að þetta er minn draumur og hugleiðing en ekki mútur.

Ég skora á alla að lesa gott viðtal við formann ungmenna hjá knattspyrnufélaginu FH í Fréttablaðinu í gær um ómálefnalegt orðahnask  nokkra forsvarsmanna Sólar í Straumi.  Ég tel að allir lífskjaravinir geti tekið undir hans grein.

Forsvarsmenn Hafnarfjarðar vita að ég vil vítamín í eflingu íþróttaaðstæðna í Hafnarfirði.  Þess vegna bið ég Sól í Straumi með liðsinni Vinstri- grænna að skrumstæla ekki orð mín.  Þetta er mín skoðun og Svig.

En stór efling á íþróttaaðstæðum verður aldrei nema að það sé kröftugt  atvinnulífi í bænum okkar. 

Ég horfi öfundar augum til Alcoa sem er að reisa stóra fjölnota íþróttahöll.

Þjöppumst saman í liði sem viljum sjá framfarir í Hafnarfirði en ekki stöðnun.

ÁÞ


Hafnarfjarðarbær á ekki og mun ekki mismuna hópum.

Spurt hefur verið hvort Málefni starfsmanna Alcan Straumsvík og það sem rétt og satt, munu sækja  um styrk til Hafnarfjarðarbæjar .

Svar við því er nei, hjá okkur er það að koma sanneikanum á fram færi og segja rétt og satt frá og starfa að heillindum.

Og sækjumst ekki eftir auði okkut til handa. 

Við fordæmum vinnubrögð Sólar í Straumi og Vinstri Græna fyrir þann málflutning þar sem sannleikanum er hagrætt og varpað fyrir borð og staðreyndum breytt og krefjum þá um að vanda  mál sitt betur og starfa að heilindum.

Þegar málefnin snúast einungis um pening frekar en um hugsjón og málefni þá vaknar upp sú spurning hvort menn séu að gera þetta til fá peninga úr hinum almennan bæjarsjóði sér til handa og um leið í hvaða tilgangi það er og hvort gróðra sjónarmið ráði þar ferðinni hjá Sól í Straumi og Vinstri Grænum?.

Kv, Svig

 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband