Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Rauða Ljónið óskar Landsbankanum til hamingju með árangurinn.

Í fréttir á Mbl.is.

Greinir frá frábærum árangri Landsbanka Íslands tekjur af erlendri starfsemi bankans námu 46,6 milljörðum sem er 52% af heildartekjum, þetta er í fyrsta sinn sem tekjur af erlendri starfsemi er hærri en á Fróni.

Rauða Ljónið óskar Starfsmönnum Landsbankans vel farnaðrar á þessu ári og vonar að sá  frábæri árangur sem náðist 2005 verði en betri 2006, Áfram til góðra verka Landsbankamenn.

Kv,Svig.


Lýst eftir nefinu hans Gosa eigendur Vinstri Grænir?

Lýst eftir nefinu hans Gosa eru eigendur Vinstri Grænir ?

Nefið hans Gosa tapaðist í Hafnarfirði á tímabilinu18. janúar til 25 janúar 2007.
Ekki er ljóst hverjir eru réttmætu eigendur að umræddu nefi eignarhaldið virðist hafa skipt um eigendur eða er óljóst um eignarhald, eftir fund um deiliskipulag í Skipulagas-og byggingaráði
Hafnarfjarðar um 18. jan.

Í Fjarðarpóstinum 18. janúar er sagt.,, Að þverpólitísk samstaða sé á mill flokka í Skipulagas-og byggingaráði Hafnarfjarðar um deiliskipulagið.

Það vakti athygli að bæjarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri Grænir tóku undir bókun Sjálfstæðisflokks um deiliskipulag.”  Vinstri Grænir eða Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir segir svo í viðtali í RÚV sjónvarpi í 10 fréttum 25. janúar. eða viku seinna að ekki sé  þverpólitísk samstaða í Bæjarráði um deiliskipulagið undarleg  yfirlýsing, voru þá Vinstri Grænir  ekki ljós að umrætt nef, nefið hans Gosa hefði tapast og legið týnt í meir en viku eða hvort það lægi hjá Vinstri Grænum eða hinum flokkum í bæjarráði.

Þetta er mjög viðkvæmt nef og dýrmætt fyrir eiganda.

Sá sem finnur nefið vinsamlega skili því í hendur rétta eigenda.

 

Kv,Svig

Stækkum Alcan, JÁ TAKK

Miklum áfanga er náð með pólitísku samkomulagi allra flokka innan bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um nýtt deiliskipulag. Í tillögunni fellst veruleg minnkun á þynningarsvæðinu frá því sem nú er.  Er það mín skoðun að hægt sé að minnka þynningarsvæðið vegna þess að nútímatækni sjái fyrir hverfandi mengun.  

 

Peningakassi Hafnarfjarðar mun bólgna út um 800 milljónir ef af stækkun yrði. þá fyrst væri hægt að tala um að létta á skattpíndasta útsvari bæjarfélags Hafnarfjarðar hvað samfeldur árafjölda varðar.

 

 Í nánustu framtíð mun þjónusta við bæjarbúa aukast mikið enda margt hægt að gera fyrir 800 milljónir. Enda er Alcan burðarás atvinnulífs í okkar bæ og mun vonandi verða það áfram. Sjálfur er ég íþróttafíkill og er viss um að Alcan komi enn sterkari inn en nú er og styðji við bakið á íþróttafélögunum hvað íþróttaaðstöðu varðar vegna ört fjölgandi iðkenda,

Sjálfur er ég hlynntur stækkun enda búinn að vinna hjá góðu fyrirtæki í um 10 ár. Að hafna deiliskipulaginu er að mínu viti fyrsti vísirinn að lokum verksmiðjunnar.  En vegferð lokun álvers getur tekið nokkur ár.

 

Stækkum Alcan Já Takk

 

ÁÞ


Stækkum álverið í Straumsvík - fyrir fólkið.

 

Undanfarin ár hef ég verið þeirrar gæfu aðnjótandi að vera starfsmaður Alcan á Íslandi eða Ísal eins og við starfsmenn köllum fyrirtækið okkar í milli. Áður en ég hóf störf hjá Ísal hafði ég unnið hjá mörgum ágætum fyrirtækjum bæði hér á Íslandi og í Danmörku í meira en 15 ár. Án þess að lasta nokkurt af þessum fyrirtækjum þá get ég fullyrt að hvergi hef ég kynnst eins almennri starfsánægju og jákvæðum starfsanda og hjá Ísal. Það tók mig nokkurn tíma að trúa því að hægt væri að vinna í fyrirtæki þar sem bros mætir manni á hverju horni og allir eru tilbúnir til að rétta hjálparhönd ef þörf er á.

Það segir nokkuð um fyrirtækið að meðalaldur allra starfsmanna er um 46 ár og meðalstarfsaldurinn um 15 ár. Ef menn lenda í því að veikjast eða missa starfsorku að einhverju leyti er þeim boðið starf í Smiðjunni, sem er sérstök deild þar sem ekki er krafist fullrar starfsorku. Þar geta starfsmenn sinnt léttari vinnu eins og að yfirfara búnað, búa til barka og slöngur og annað sem fellur til í stóru fyrirtæki. Ætli það séu mörg fyrirtæki á Íslandi sem bjóða upp á “áhyggjulaust ævikvöld” í vinnunni? Þeir sem vilja fræðast meira um Smiðjuna ættu að lesa viðtöl við starfsmenn í grein á vef Alcan: http://alcan.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=256.

Hvergi hef ég kynnst öflugra fræðslustarfi en hjá Ísal. Þar er starfræktur skóli sem nefnist Stóriðjuskólinn. Verkafólki og iðnaðarmönnum er boðið uppá nám sem metið er til náms á framhaldsskólastigi. Meira en 200 Stóriðjugreinar og Áliðjugreinar hafa verið útskrifaðir úr Stóriðjuskólanum. Meðal þeirra sem hafa útskrifast eru eflaust margir sem hlakka til að takast á við ný og spennandi störf í stækkuðu álveri og eiga þannig möguleika á starfsframa sem er takmarkaður í Ísal í dag.

Fyrir utan Stóriðjuskólann er mikið framboð af allskonar námskeiðum jafnt innan fyrirtækisins sem utan. Öryggismálin eru gjarnan efst á listanum yfir þá fræðslu sem í boði er.

Í ár er Ísal að halda upp á 40 ára afmæli. Þrátt fyrir mikið og gott viðhald á þessum árum er verksmiðjan orðin gömul og úrelt á nútíma mælikvarða. Ef fyrirækið fær ekki að stækka og endurnýjast eru miklar líkur á að samkeppnin verði til þess að fyrirtækinu verði lokað innan 10 ára. Viljum við Hafnfirðingar virkilega að þetta fyrirtæki hverfi úr bænum okkar? Nei, sýnum samstöðu og kjósum já við stækkun í væntanlegum kosningum!

 

Kv.JG. 


Starfsmanna Alcan í Straumsvík og það sem Rétt og Satt er.

Hlustð

Rauða Ljónið hlustar og virðir skoðanir annara varðandi stækkun Alcan í Straumi.

Rauða Ljónið vill málefnalega umræðu um starfsmenn Alcan.

Rauða Ljónið vill sannleikan upp á borðið.

Rauða Ljónið vill aukið atvinnulýðræði og bjarta framtíð í Hafnarfjörð óðháð pólitík.

Rauða Ljónið vill að Vinstri Grænir og Sól í Straumi segi satt að Alcan sé Álver ekki Álbræðsla.

Rauða Ljónið segir á meðan Vinstri Grænir tali um Álbræðslu eru þeir að fara með ósannindi.

 

Kveðja, Rauða Ljónið. 

 


Undarlegur viðsnúningur Vinstri Græna í Hafnarfirði .

í Fjarðarpóstinum 18. janúar  segir að,, sérstæð samstaða í bæjarstjórn í starfshóp um deiliskipulagi”.

En fremur er sagt að. ,, Það vakti athygli að bæjarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænir tóku undir bókun Sjálfstæðisflokks um deiliskipulag”   þá var ljóst að hverju stefndi um þynningarsvæðið. Hvor er þá að greina rétt frá Vinstri grænir eða Fjarðarpóstinum?


mbl.is VG: Engin þverpólitísk samstaða liggur fyrir í bæjarstjórn Hafnarfjarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þynningarsvæðið aðlagað mælingum á umhverfisþáttum og niðurstöðum á mælingum.

 

Frétt af mbl.is 24.1.2007 kl 14:59

Þynningarsvæði álversins í Straumsvík minnkað verulega

Bæjarstjórinn í Hafnarfirði, Lúðvík Geirsson, kynnti á fundi með blaðamönnum í dag hugmyndir að deiliskipulagi fyrir nýtt athafnasvæði álversins í Straumsvík vegna stækkunar.

 Kemur þar fram að svonefnt þynningarsvæði, sem er það svæði umhverfis álverið þar sem þynning mengunar á sér stað, verður einungis þriðjungur þess sem tilgreint er í gildandi starfsleyfi.

 Kv,Svig

 

 

 

 


mbl.is Þynningarsvæði álversins í Straumsvík minnkað verulega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álver - góður kostur

Er grein  í URÆÐUNI á bls. 24 eftir Aðalsteinn Á. Baldursson og skrifar hann um álver í Húsavík í landi Bakka við Húsavík.

Og segir hann meðal anars, ,, Ég vil leyfa mér að halda því fram að það sé lífsspursmál fyrir
Norðlendinga að álver rísi með tilheyrandi eflingu byggðar og atvinnulífs."

Rauða Ljónið er sammála Aðalsteini að það sé mikið hagsmunarmál fyrir Húsavík og  nágrenni, fái ný atvinnutækifæri  til að Norðurland eystri og Þingeyjarsýsla svo þar megi blómstra byggð um alla framtíð.

Með kveðju til Húsavíkur, Svig.

 

 


Tillaga? Kosið um stækkun Alcans 31 mars og samþykktt að veita styrki/fundargerð bæjarráðs Hafnarfjarðar.

       Á bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði  var samþykkt í gær eftirfarandi tillaga um styrki til hinna ýmsu samtaka um stækkun Alcans sem vilja kynna skoðanir sínar.  Einnig kom fram tillaga um að kjósa skuli um stækkun Alcans 31 mars.


3.      0701299 - Kjördagur og undirbúningur íbúakosningar vegna deiliskipulags á Alcan-svæðinu.  gð var fram eftirfarandi tillaga til næsta fundar?

”Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að heimila bæjarráði að styrkja samtök/lögaðila sem leita eftir fjárhagslegum stuðningi vegna kynningar á sjónarmiðum og viðhorfum í tengslum við kosningarnar. Í því sambandi verði miðað við þær styrktargreiðslur sem veittar hafa verið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.”

  "Vísað til afgreiðslu á næsta fundi. " 

Ég fann það hvergi hvað bæjarsjóður Hafnarfjarðar hefur veitt mikla styrki til pólitískra athafna eða hvað slík upphæð er stór á síðustu árum.

  

Ef einhver veit meira um fordæmi á pólitískum styrkjum Hafnarfjarðabæjar, þá væri gott að fá innskot í athugasemdardálkinn. Það er mín skoðun að bæjarsjóður á ekki að ausa peningum úr tómum peningakassa í slík verkefni heldur eiga samtök að leita til fyrirtækja eða annara velunnara sem styðja þeirra mál. Nú er svo komið að bæjarkassinn verður líklegast að afgreiða tugi umsókna til hinna ýmsu samtaka sem vilja kynna mál sitt um stækkun Alcans.

 Stækkum Alcan,  JÁ TAKK. 

ÁÞ 


Alcan á Íslandi. Starfsmannahornið.

Alcan er í eigu Kandamanna, Svisslendinga og Frakka, allir sem samþykkt hafa Kyoto samninginn.  Auðvitað er ofmælt að segja að fyrirtækið sé íslenskt en fyrirtækið er rekið eins og öll íslensk fyrirtæki ættu að vera, af fagmennsku og samkvæmt íslenskum leikreglum.

Stækkum í Straumsvík.

Kv,   L H.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband