Leita í fréttum mbl.is

Jóhannes bestur í að reka Bónus

Þegar skip eru að fiska og það lóðar grimmt túr eftir túr, er þá skipstjóranum hent útbyrðis? Nei, en það er gert á Íslandi. Hverjum skipstjóranum eftir öðrum er hent útbyrðis og  fyrir vikið eru skipin með óhæfa stjórnendur á miðunum þar sem fiskur er og enginn kann að kasta rétt. 

Fjöldinn af frábæru menntuðu fólki úr heimi bankanna er flúinn land. Við erum að missa fólkið sem kann og getur í heimi fjármálanna bara af því það vann í bönkunum. Þá er það tabú ef stjórnendur sem þekkja Jón Ásgeir eru á lausu, þá fá þeir enga vinnu þrátt fyrir það að menn vita þeir eru þeir bestu sem völ er á. Ég er að tala um yfirmenn í fyrirtækjum og bönkum. Í Þýskalandi eftir stríð voru menn sem höfðu sannarlega unnið með áður ríkjandi valdhöfum beðnir um að hjálpa til við uppbyggingu þjóðfélagsins. Þeir voru taldir ómissandi. Hér heima ríkir stjórnleysi, getuleysi og allt er í einni þvælu.

Hvernig má það vera að Jóhannes í Bónus geti ekki átt Haga? Hagar eru að skila milljörðum. Hversvegna fær Óli Óla að halda Samskipum en Jóhannes ekki? Það er vitað í heimi bankanna að þarna ráði pólitík för. Ef það er halli á ríkisjóð, er þá engin ríkisstjórn? Færum við að reka landið? Jóhannes er sá sem kann best að reka fyrirtækið ásamt sínu fólki. Hvað ætlar bankinn að gera? Láta einhvern annan  í að reka fyrirtækið? Það mun þá að öllum líkindum hrynja og þetta veit bankinn, en vegna þess að Gylfi Magnússon og undirtyllur beita þrýstingi þá skal það vera þannig að Jóhannes eigi ekki að reka Haga. Það er í hæsta máta óeðlilegt að þeir sem kunna, geta og hafa alla þekkingu sem þarf til að reka fyrirtækið séu og fái ekki að njóta sömu kjara og aðrir í sambærilegri stöðu. Það að þetta skuli vera hægt - að koma í veg fyrir það af stjórnmálamönnum, ráðherrum, ásamt Morgunblaðinu og öfgahægrimönnum, að Hagar verði ekki á hendi Jóhannesar er rugl. Allt er gert til að koma í veg fyrir að það takist.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Minn kæri SIgurjón, hvað er nú upp á teningnum?

Ert virkilega að segja að Jóhannes hafi rekið Haga? Hvaðan kemur þér slík firra í hug?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 8.5.2010 kl. 20:50

2 Smámynd: Brattur

Jóhannes, fyrirverandi kona hana og móðir Jóns Ásgeirs og svo Jón Ásgeir sjálfur skulda 300 milljarða sem er næstum því tvöföld Icesave skuldin... kann þetta fólk að reka fyrirtæki ? Búið að setja heila þjóð á hausinn... kanntu annan ?

Brattur, 8.5.2010 kl. 21:00

3 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll. Heimir þessi færsla var sett inn til að vekja umræður hér er hún í heild en hún er eftir Bubba

Rauða Ljónið, 8.5.2010 kl. 21:15

4 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Dastu nokkuð á höfuðið Sigurjón?

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 8.5.2010 kl. 21:19

5 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll. Brattur setti link inn við þessa  færslu sem upphaflega skrifaði  hún var eftir Bubba  og sett inn til að skapa umræðu þakka svarið.

Kv Sigurjón

Rauða Ljónið, 8.5.2010 kl. 21:20

6 Smámynd: Rauða Ljónið

Nei. ,,, Silla mín gaf konunni nýtt kökukefli í dag það gamla brotnaði í gær þegar ég var að bloga inn á þig, er sár í hnakkanum.
Kv. Sigurjón

Rauða Ljónið, 8.5.2010 kl. 21:22

7 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Það hlaut að vera

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 8.5.2010 kl. 21:24

8 Smámynd: Dingli

Skipsstjóri sem stæli öllum aflanum og kæmi með tómt skip að landi, fengi varla að taka við nýa skipinu.

Dingli, 8.5.2010 kl. 22:01

9 Smámynd: Rauða Ljónið

Já Dingli það má segja það.

Rauða Ljónið, 8.5.2010 kl. 22:17

10 Smámynd: Brattur

Góður ! og ég meina ÞÚ ert góður... það eru aðrir sem eru vondir... ég tek gleði mína aftur

Brattur, 9.5.2010 kl. 00:06

11 Smámynd: Rauða Ljónið

Takk. Brattur.

Kv. Sigurjón

Rauða Ljónið, 9.5.2010 kl. 00:21

12 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ég var núna fyrst að vakna af þunglyndinu sem greip mig eftir lestur pistils þíns í gær, Sigurjón. Sem betur fer var það bara Bubbi sem skrifaði þetta eða Baugur í hans stað. Tek gleði mín aftur.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 9.5.2010 kl. 12:07

13 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll. Heimir  takk, Bubbi er nú með baug á hverjum fingri glópagull, gott að þú takir gleðina aftur hún er lífsins gildi, hvort hann hafi skrifað frá eigin brjóstið eða eigi veit ég ekki, eins og ég sagði setti ég þetta inn til að skapa umræðu og vekja upp hugsanir um ástandið, hinsvegar hringdi bróður minn í mig um hálf ellefu í gærkveldi og spurði mig hvort ég væri endalega Klepptækur eftir  skrif mín las ekki allt já hann las yfir mér, ég á góðan bróðir hann bauðst til að keyra mér inneftir, en eftir eð ég skírði honum gang mála og hversvegna ég setti þetta inn ætlar hann að bíða með það fram í næstu viku.

Kv. Sigurjón

Rauða Ljónið, 9.5.2010 kl. 21:01

14 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Gott að eiga skilningsríkan bróður.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 9.5.2010 kl. 21:33

15 Smámynd: Rauða Ljónið

Já gott að eiga góða að.

Rauða Ljónið, 9.5.2010 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband