Leita í fréttum mbl.is

Bros í Straumi

Á næstunni fá Hafnfirðingar að segja álit sitt á fyrirhugaðri stækkun álversins í Straumsvík.  Í kosningunum gera kjósendur upp við sig hvort nýtt deiliskipulag sem gerir álverinu kleift að stækka hugnist þeim eða ekki.  Í kosningunni eru valkostirnir ekki þeir að álverði verði áfram í óbreyttri mynd eða stækki, heldur hvort það fær að stækka og þróast til framtíðar eða hvort upphafði að endinum verður ákveðið.  Sjaldan hefur verið mikilvægara en nú að hagsmunaaðilar upplýsi almenning um staðreyndir máls og dragi fram kosti og galla á heiðarlegan hátt.

 

Umræðan um álverið í Straumsvík og væntanlega stækkun hefur oft byggt á miklum fordómum á nýliðnu ári, en fordómar er samkvæmt skilgreiningu; dómur er byggir á óbeit, sem ekki styðst við reynslu, rök eða þekkingu.  Fordómar eiga því ekki erindi inn í eðlilega, uppbyggjandi umræðu.

 

Þrátt fyrir að tilfinningar okkar  séu oftar en ekki byggðar á veikum útreiknanlegum forsendum eru tilfinningaleg rök gild rök.. Við erum einfaldlega með einu og á móti öðru af því að reynslan segir okkur að hitt eða þetta samræmast ekki lífsýn okkar eða tilfinningum. Það sem skiptir þó mestu máli þegar við viðrum skoðanir okkar opinberlega er að vera eins málefnaleg og við höfum vit til og að fara ekki með fleipur. Þetta hefur stundum skort hjá þeim er harðast ganga fram gegn stækkun álversins í nafni náttúruverndar eða vegna oftúlkunar á sjónrænum áhrifum stækkunar á ásýnd bæjarins.

 

Álverið í Straumsvík á sterkar rætur hjá gamalgrónum Göflurum, enda hefur álverið lengi verið ein sterkasta stoðin í atvinnulífi bæjarins. Fjölmargir Hafnfirðingar vinna hjá Alcan, hafa unnið þar bróðurpart starfsæfinnar, verið þar sumarstarfsmenn eða eiga sitt undir verktöku eða viðskiptum við Alcan. Mín tilfinning er að hartnær allir samstarfsmenn mínir hjá Alcan og verktakar séu hlynntir stækkun, það hljóta að vera bestu meðmæli sem fyrirtæki getur fengið í kosningabaráttu sem þessari.

 

Mikil ábyrgð verður lögð á herðar Hafnfirðinga í komandi kosningum.  Í 40 ár hafa ýmsir atburðir tengdir álverinu vakið athygli um land allt og flestir íslendingar hafa einhvertíman myndað sér skoðun  á því, það er eðlilegt því álverið hefur verið í  stöðugri þróun frá upphafi og hefur brotið blað á mörgum sviðum. Alcan hefur um árabil verið lang stærsti raforkukaupandi landsins og  í fararbroddi hvað varðar sérhæfða tækni sem og þróun tölvukerfa í iðnaði. Alcan rekur mjög metnaðarfulla umhverfis-, heilsu- og öryggisstefnu sem miðar að lámörkun mengunar og umhverfisáhrifa og því að enginn beri skaða af starfi sínu,. Þess má geta að árangur í öryggismálum og mengunarvörnum er tengdur bónusgreiðslum til starfsmanna.

 

Starfsmannastefnan álversins hefur frá upphafi verið með þeim hætti, að þeir sem hefja störf í álverinu í Straumsvík ílengjast gjarnan svo áratugum skiptir. Þar fara saman þeir þættir er starfsfólk metur að verðleikum hvað varðar starfsumhverfi, kaup og kjör. Álverið í Straumsvík er góður vinnustaður sem á skilið að fá að halda stöðu sinni sem framsæknasta stóriðja landsins. Til þess að svo megi verða til framtíðar er nauðsyn að fyrirtækið fái að þróast og stækka á eðlilegan hátt.

Kveðja
Reir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Árangur í öryggismálum og mengunarvörnum umhverfismálum er tengdur bónussgreiðslum til starfsmanna sem hafa gefið 15% í launaumslagið ekkert annað fyrirtæki á Íslandi er með er með svona ákvæði í sínum samningum við starfsmenn og verkalýðsfélög er standa að samningsgerð sem eru meðvituð um stefnu í þeim málum og fara þarna saman markmið Alcan í umhverfismálum og starfsmanna.

Svig. 

sigurjón vigfúson (IP-tala skráð) 23.1.2007 kl. 17:03

2 Smámynd: Morten Lange

Sæl(ir)  Reir og vínir,

Áhugaverð umræða þetta um stækkun álversins.

Ég er sammála eftirfarandi sem birtist á bloggnum : 

Það sem skiptir þó mestu máli þegar við viðrum skoðanir okkar opinberlega er að vera eins málefnaleg og við höfum vit til og að fara ekki með fleipur.

En mér finnst eins og of langt sé á milli rökin líka hér á redlion.blog.is   

Það væri frábært ef  þið og andtæðingar mundu taka höndum saman og birta yfirlit yfir helstu rök og mótrök með kjarnyrt rökstuyðningu, helst með tilvitnanir.

http://is.wikipedia.org  væri kannski hentugur staður ?  

Mögulega halda umræðunum á spjallsíðunni, en óumdeildar staðreyndir um Álverið í Straumsvík á síðunni sjálfri ? 

Morten Lange, 23.1.2007 kl. 17:10

3 identicon

Sæll Morten Lange,

Takk fyrir góða athugasemd. Það vantar oft tilvitnanir og heimildir fyrir því sem skrifað er á bloggsíður. En það er oft tilgangur bloggsíða að fólk geti tjáð sig á óformlegan máta. En við getum verið málefnaleg þótt við séum ekki formleg með því að nota röksemd og virða skoðanir annarra.

Ég skal reyna hvað ég get héðan í frá að vitna í tengt efni á netinu. En síðan sem þú vitnar í er frekar takmörkuð og almennt lítið hægt að vitna í íslenskt efni. En það breytist nú kannski eftir byggingu í Reyðarfirði og fyrirhugaðri stækkun í Straumsvík.

Fannar Jónsson (IP-tala skráð) 23.1.2007 kl. 17:58

4 identicon

Mig langar til að benda fólki á að á vefsíðunni www.alcan.is er að finna skýrslu sem gefin var út í maí 2002 og nefnist "Stækkun ISAL í Straumsvík Mat á umhverfisáhrifum" slóðin er (http://www.alcan.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=215). Þar má finna ýmsan fróðleik og meginniðurstaða skýrslunnar er sú að "Fyrirhuguð stækkun álversins og aukning útblásturs í kjölfar þess er ekki talin hafa skaðleg áhrif á heilsu starfsmanna álversins né íbúa í nágrenni". Það væri fróðlegt að sjá svona ítarlega skýrslu um mengun frá öðrum fyrirtækjum á iðnaðarsvæðinu hinu megin við Reykjanesbrautina. Og ekki fengum við Hafnfirðingar að kjósa um það hvort malbikunarstöðin yrði reist við gafl þeirra sem búa á Völlunum, þrátt fyrir að búið sé að kvarta ítrekað vegna hennar til heilbrigðisnefndar. Kveðja, Björk Ragnarsdóttir

Björk Ragnarsdóttir (IP-tala skráð) 23.1.2007 kl. 18:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband