Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010

Uppsagnir hjá RÚV.

 Fjölmörgum starfsmönnum Ríkisútvarpsins var sagt upp í dag og búist er við að enn fleiri fá uppsögn á morgun. Þar af var þremur starfsmönnum Kastljóssins sagt upp störfum.

Starfsmannafundur verður haldinn á morgun þar sem nánar verður greint frá uppsögnum og niðurskurði.

RÚV hefur verið reki með miklu tapi í mörg ár og er þetta liður í sparnaði.


Kalli í Pelsinum grunaður um fjársvik.

Ríkislögreglustjóri var með fjóra menn í yfirheyrslu í gær athafnamaðurinn Karl Steingrímsson  er einn þeirra, sem nú hefur stöðu sakbornings  og sonur hans Aron Pétur voru yfirheyrðir í gær í tengslum við rannsókn efnahagsbrotadeildar á sölu stórhýsis til kínverska sendiráðsins.
Þeir eru grunaðir um fjársvik og gruns um fjársvik við sölu á fasteign til kínverska sendiráðsins, hann hefur um árabil verið meðal umsvifamestu manna í fasteignabransanum .
Veldi hans fylgja skuldir upp á yfir þrjá milljarða.
Karl hefur verið stórtækur við kaup og sölu á fasteignum og rekstur og útleigu atvinnuhúsnæðis á undanförnum árum. Í dag rekur hann ásamt syni sínum eignarhaldsfélagið Sundafasteign, sem á skrifstofuhúsnæðið við Sundagarða 2 í Reykjavík - þar sem Olís er meðal annars til húsa, auk þess fasteign og bílastæðahús við Grensásveg í Reykjavík og iðnaðarhús við Fiskislóð. Þá er Karl eigandi félagsins Eignamiðjan sem er með í byggingu lúxusblokk og verslunarhúsnæði að Tryggvagötu 18. Einnig á hann ásamt syninum Austurstræti 16, þar sem skemmti- og veitingastaðurinn Apótekið er til húsa.

Og fasteignir út fyrir höfuðborgarsvæðið því feðgarnir Karl og Aron eiga líka stórt skrifstofuhúsnæði við Austurveg á Selfossi, sem raunar er eitt stærsta hús bæjarins.

Umsvifum sem þessum fylgir skuldsetning en skuldir og ábyrgðir félaga í eigu Karls Steingrímssonar og fjölskyldu vegna áðurnefndra fasteigna nema á bilinu 3 til fjórum milljörðum króna samkvæmt nýjustu opinberu gögnum.

 

 


Icesave verður endurskoðun grundvallarréttur og galli í ESB lagaramma um fjármálastöðugleika. Það eru engin gildi reglur um málsmeðferð eða hvernig ætti að vera, verði hrun á banka milli landa.

Regler saknas vid kollaps

PERSPEKTIV | Mats Hallgren om Island

Publicerad: 20 januari 2010, 08.29

Konflikten mellan Island och Storbritannien–Nederländerna om vem som ska betala vad för sammanbrottet i den isländska internetbanken Icesave sätter strålkastaren på en fundamental brist i EU:s regelverk för finansiell stabilitet. Det saknas fungerande regler och rutiner för hur en kollaps i en gränsöverskridande bank ska hanteras.

Þarf engan fund ef ríkisstjórnin væri heil heilsu gagnvart sjómönnum.

Baráttufund gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu verður haldinn í Vestmannaeyjum . Þingmenn Samfylkingarinnar segir fundinn ótímabæran.
Árni Johnsen styður aðgerðir útgerðarmanna hins vegar heilshugar.
Stór hluta flota stefnir í land til að fjölmenna á baráttufund gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Í fundartilkynningunni segir að ætlunin sé að mótmæla ákvörðunum stjórnvalda um fyrningarleið í sjávarútvegi, útflutningsálagi á ísfisk og afnámi sjómannaafsláttar þess skal geti að sjómannaafsláttur er margfalt hærri á norðurlöndunum en hér á landi á símatíma og á að afnema sjómannaafsláttinn hækkar ríkistjórnin framlög til listarmannlauna afla þeir tekna fyrir þjóðarbúið?.
Á fundinum, sem haldinn verður annað kvöld, stendur hópur fyrirtækja og félaga sem tengjast sjávarútvegi í Vestmannaeyjum, sem og Vestmannaeyjabær.

 „Það þyrfti engan fund ef ríkisstjórnin væri heil heilsu.“

Verjendur sakborningana lákum gögnum um Wernersynina ?

Sérstakur saksóknari hafnar ósannindum um leka. Það sé síður en svo hagur rannsóknaraðila að slíkar upplýsingar séu birtar. Hann bendir á að verjendur sakbornina hafi fengið gögnin í málinu.

Eins og kom farm í morgun  lýsir Steingrímur bróður sínum sem einræðisherra með algjöra siðblindu í yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara. DV fjallar um málið í dag. Svo sagði:

„Steingrímur segir Karl hafa kúgað sig svo mikið að hann hafi næstum getað sagt hvenær hann ætti að fara á klósettið. Hafi hann verið haldinn Stokkhólmsheilkenni í samskiptum við bróður sinn. Um mitt ár mun Karl hafa hrakið Steingrím úr höfuðstöðvum Milestone og sagt honum að láta ekki sjá sig þar. Steininn tók svo úr þegar Karl ætlaði að kaupa Ingunni, systur þeirra, út úr Milestone á algjöru undirverði. Steingrímur kom í veg fyrir það, en Karl mun hafa orðið mjög reiður og séð eftir þeim 2,5 milljörðum sem Ingunn fékk.“ 

Eru verjendur með þessu að fá málið ógilt og það falli niður?


Viðskiptaráðherra vissi ekkert um bankamálin út af vantrausti milli hans og Ingibjargar Sólrúnar.

Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, fékk ekkert að vita um þjóðnýtingu Glitnis  vegna vantraust milli hans og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.
Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar um bankahrunið.
Lýðræðið fótum troðið einræði formanns Samfylkingarinnar hafið til skýjanna,  síða hefur ekkert breytts.
Björgvini var haldið í myrkri hvað þjóðnýtinguna varðar vegna vantraust milli hans og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.
Hvers vegna fékk Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra ekkert að vita um þjóðnýtinguna var honum ekki treyst, er ekki þingmönnum Samfylkingarinn yfir höfuð ekki treyst af formönnunum?
Svörin við því verða í skýrslu rannsóknarnefndarinnar.

Borgarfulltrúar og embættismenn neita að bora fyrir sumarbústaði sem þeir nota.

Borgarfulltrúi Vinstri grænna Þorleifur Gunnlaugsson , vill að borgarfulltrúar og aðrir embættismenn borgarinnar borgi fyrir afnot af sumarbústaði borgarráðs við Úlfljótsvatn, sem þeir fá frítt á sama tíma verði aðrir að greiða fyrir afnot á bústöðum undirtektirnar í borgarkerfinu eru dræmar.

Þegar hann hafi notað bústaðinn á dögunum og ætlað að fara að borga, en ekki fengið það. Hefur hann rætt málið óformlega í borgarstjórn Reykjavíkur og forsætisnefnd, en ekki hafi margir tekið undir mál hans en gripið fast um buddu sína. Hann hafi því tekið upp málið formlega til að vekja á því athygli.

Borgarráðsbústaðurinn stendur út af fyrir sig nálægt klasa bústaða sem Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar á og nokkrum bústöðum í eigu Orkuveitunnar og Faxaflóahafna. Þar séu þrjú svefnherbergi miðað við tvö í starfsmannabústöðunum. Heitur pottur er við öll húsin. „Þessi bústaður er betur mubleraður en þetta er ekkert lúxusdæmi

 


Kínverska sendiráðsmálið.

Ríkislögreglustjóri var með fjóra menn í yfirheyrslu en nú er búið að sleppa mönnunum fjórum, gerðar hafa verið húsleitir þar á meðal hjá fasteignarsölu og lögfræðistofu og hald verið lagt á tæpar 100 milljónir króna og gögn vegna sölu á húsnæði til kínverska sendiráðsins. Um er að ræða fasteignina Skúlagötu 51 var í eigu félagsins Vindsúla en fyrir því félagi eru skráðir feðgarnir Karl Steingrímsson og Aron Karlsson. Fasteignin var veðsett fyrir rúman milljarð króna vegna lána í Arion banka, Íslandsbanka og Glitni.

Gegnið var í desember að tilboði frá indversku fyrirtæki í fasteignina fyrir 575 milljónir króna. Féllust bankarni á þá sölu. Í kjölfarið var fasteignin flutt í nýtt félag, 2007 ehf. sem er einnig í eigu feðganna. Þremur dögum síðar var tekið öðru tilboði í húsið, nú frá kínverska sendiráðinu og hljóðaði það upp á 875 milljónir. 

Bankarnir þrír kærðu söluna til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og töldu að verið væri að hlunnfara þá um 300 milljónir króna með blekkingum.

Mikið af upplýsingunum eru skjalfest vegna viðskiptanna sem auðveldar rannsókn málsins. Kæra barst embættinu á föstudaginn í síðustu viku og hófst þá rannsóknin. Þá þegar var lagt hald á 93 milljónir króna sem er ætlaður ágóði af sölu félagsins Vindasúlur ehf. eftir að þeir seldu kínverska sendiráðinu hús á Skúlagötu 51 fyrir 870 milljónir króna.Arion banki, Glitnir og Íslandsbanki telja að með þessum gjörningi hafi feðgarnir haft af þeim allt að 300 milljónir króna.
--

Ríkisstjórn Ísland algjörlega óhæf að kynna málstað Íslendinga á erlendri grund.

Ríkisstjórn  Íslands hefur brugðist skyldum sínu.
Undanfarnar vikur hafa birst greinar í The Financial Times of öðrum enskum blöðum og miðlum sem málstaður Íslendinga í Icesave deilunni hefur fengið meiri umfjöllun en áður.
Einn af ritstjórum  blaðsins  The Financial Times Martin Wolf, hefur skrifað nokkrar þeirra en hann telur að umræðan hafi breyst að undanförnu og snúist Íslendingum í hag.
  Meðal þess sem hann skrifar svo og aðrir fjölmiðlamenn er hversu ríkistjórn Íslands hefur brugðist skyldum sínum og lítt sinnt þeim brýnu verkefnum að kynna málstað Íslands og að ríkisstjórn Íslands sé með þeim hætti algjörlega óhæf að halda upp vörnum fyrir hönd Íslendinga.
Þeir sem hafi kynnt málstað íslendinga erlendis sé frjálsir pennar á Íslandi og Íslenskir föðurlandsvinir


Heyrst hefur að VG vilji sinn mann sem stjórenda Kastljós.

Talið mögulegt að þátturinn Kastljós fari undir stjórn Óðins Jónssonar en VG telja hann sinn mann, eftir skyndilegt brotthvarf Þórhalls Gunnarssonar frá Ríkisútvarpinu. Heyrst hefur að um 20 manns verði sagt upp hjá Ríkisútvarpinu fyrir mánaðarmót reiknað er með að uppistaða þeirra sem fá uppsagnarbréf verði fólk með meðallaun, meðallauna  starfsmanna er 664 þúsund á mann.
Hallarekstur hefur verið viðvarandi vandamál hjá Ríkisútvarpinu í mörg ár. Um síðustu áramót hafði Páll Magnússon stjórnað Ríkisútvarpinu í 1.581 dag með halla upp á 1,1 milljón krónur á dag að meðaltal, Páli hefur ekki tekist að halda utan um reksturinn þau fjögur ár sem hann hefur starfað sem útvarpstjóri en heildar tapið aukist ár frá ári.

 

images.jpg


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband